Fotbolti.net
23.03.22 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Derby neyðist til að selja efnilegan bakvörð (Staðfest)

Wayne Rooney, stjóri Derby, var að missa efnilegan bakvörð.

Wayne Rooney, stjóri Derby, var að missa efnilegan bakvörð.

Canon

Mynd: Getty Images

Derby County, sem leikur í næst efstu deild Englands, var að selja bakvörðinn Festy Ebosele til Udinese á Ítalíu.

Derby er í miklum fjárhagsvandræðum og þarf þess vegna að selja leikmanninn.
Ebosele er mjög efnilegur bakvörður sem kemur úr akademíu Derby. Á þessu tímabili er hann búinn að spila 30 deildarleiki fyrir sitt lið og skora tvö mörk.

Hinn 19 ára gamli Ebosele skrifar undir fimm ára samning við Udinese, sem er í ítölsku úrvalsdeildinni.

Ebosele er hluti af U21 landsliði Írlands og ætti að eiga bjarta framtíð fyrir höndum ef hann heldur rétt á spilunum. Það að missa hann mun ekki hjálpa Derby í baráttunni um að halda sér uppi í Championship-deildinni.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.