23.04.13 - 13:23
Elvar Geir Magnússon
Dominic Furness í FH (Staðfest)

Dominic Furness ásamt bræðrum sínum.

Mynd: Valgeir Kárason

Dominic Furness ásamt bræðrum sínum.

Mynd: Valgeir Kárason
Englendingurinn Dominic Furness er genginn í raðir Íslandsmeistara FH. Hann lék með Tindastóli í 1. deildinni í fyrra og er 25 ára djúpur miðjumaður.
Hann lék með Tindastóli í 1. deildinni í fyrra og skoraði þar eitt mark. Hann er bróðir Theo Furness sem er hjá ÍA og markvarðarins Sebastian Furness sem var mark Stólana í fyrra.

Í viðtali við stuðningsmanna síðu FH lýsir Dominic sjálfum sér sem vinnusömum og metnaðarfullum leikmanni sem lifi fyrir fótboltann. Honum líkaði lífið á Sauðarkróki vel.
„Ég bjó með bræðrum mínum og góðum vini Ben Everson sem ég hafði spilað með í Bandaríkjunum. Ég kynntist einnig Max Touloute og við urðum góðir vinir. Við bjuggum allir í sama húsi,\" segir Dominic.
„Þetta var skemmtileg tilbreyting frá lífsháttunum í Bandaríkjunum. Á Króknum gátum við gengið á alla áfangastaði. Þá voru strákarnir í Tindastóli frábærir og það var mikið hlegið.\"
Dominic Furness var á sínum tíma í herbúðum Middlesbrough og Hibernian í Skotlandi áður en hann fór í skóla í Texas. Hann gekk svo í raðir Tindastóls og segir að þjálfari liðsins, Halldór Jón Sigurðsson (betur þekktur sem Donni), hafi hjálpað sér að komast í stærra lið.
„Ég hafði rætt við Donna um að ég vildi stíga skref upp á við og hann vissi að ég væri fær um það. Donni sýndi óeigingirni og hjálpaði mér að komast til FH. Topp þjálfari og frábær gaur. Ég er ekki viss um að margir aðrir þjálfarar hefðu gert það sama,\" segir Dominic Furness sem setur stefnuna á að vinna deildina með FH.