Fotbolti.net
23.04.13 - 08:53
Daníel Freyr Jónsson

Mario Götze fer til FC Bayern í sumar (Staðfest)

Mario Götze verður næstdýrasti leikmaður í sögu þýskalands.

Mario Götze verður næstdýrasti leikmaður í sögu þýskalands.

Canon

Mynd: Getty Images

Kvennalandslið
Borussia Dortmund hefur staðfest að hinn 20 ára gamli Mario Götze gangi í raðir FC Bayern í sumar. Kaupverðið er 38 milljónir evra.
Þýska dagblaðið Bild greindi frá því seint í gærkvöldi að samningarnir væru frágengnir, en nú hefur það verið staðfest.

FC Bayern hefur einnig gefið út að samningar hafi nást við leikmanninn og að félagið muni virkja klásúlu í samningi Götze sem gerir honum kleift að yfirgefa Dortmund. Meistararnir hafi hinsvegar ætlað sér að bíða með að staðfesta kaupin þar til eftir leik Dortmund gegn Real Madrid í Meistaradeild Evrópu í vikunni.

Götze gengur síðan í raðir Bayern þann 1. júlí næstkomandi.

,,Við erum mjög svekktir, en verðum þó að segja að Mario Götze hefur hagað sér algjörlega í samræmi við samning sinn,\" segir meðal annars í yfirlýsingu Dortmund.

Þar sem Bayern mun kaupa upp samning hans og verður Götze næst dýrasti leikmaður í sögu þýska fótboltans á eftir Javi Martinez sem gekk í raðir FC Bayern síðasta sumar frá Athletic Bilbao fyrir 40 milljónir evra.

Ljóst er að Bayern er enn frekar að festa sig í stalli sem eitt stærsta knattspyrnufélag heims með kaupunum, en Götze verður fyrsti leikmaðurinn sem Pep Guardiola fær. Spánverjinn tekur við liðinu í sumar af Jupp Heynckes, sem hefur stýrt ótrúlegu gengi liðsins á tímabilinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.