Fotbolti.net
23.04.22 - 12:54
Brynjar Ingi Erluson

Hafþór Péturs í Kára (Staðfest)

Hafþór Pétursson

Hafþór Pétursson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hafþór Pétursson er genginn til liðs við Kára frá Þrótti R. en þetta kemur fram í tilkynningu frá Káramönnum.
Hafþór er fæddur árið 1997 og uppalinn á Akranesi en hann lék upp alla yngri flokka með ÍA áður en hann steig sín fyrstu skref með meistaraflokki Kára árið 2014.

Hann spilaði þá með liðinu í 4. deildinni ásamt því að spila með 2. flokki ÍA.

Hafþór spilaði þrjú tímabil með meistaraflokki ÍA bæði í Inkasso-deildinni og í Pepsi Max-deildinni áður en hann samdi við Þrótt árið 2019.

Hann hefur spilað síðustu þrjú tímabil þar en er nú mættur aftur á Akranes og mun leika með Kára í 3. deildinni í sumar.

Hafþór er kominn með leikheimild og mun spila með liðinu gegn Víkingi Ólafsvík í 2. umferð MJólkurbikarsins klukkan 16:00.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.