Óðinn tekur við af Gunnari Heiðari hjá KFS (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson


Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
KFS hefur ráðið nýjan þjálfara eftir að Gunnar Heiðar Þorvaldsson hætti störfum til að taka við Vestra. Óðinn Sæbjörnsson hefur tekið við liðinu sem leikur í 3. deildinni í sumar.
Í tilkynningu á Íbvsport.is segir að hann þekki vel til fótboltans í Eyjum en hann hefur verið við þjálfun hjá ÍBV áður. Þá spilaði hann á sínum tíma upp yngriflokka ÍBV og síðar í 2. og 3. deild með KFS.
„Ég er mjög spenntur fyrir þessu verkefni enda KFS með virkilega skemmtilegt og efnilegt lið. Við munum halda áfram að styrkja samstarfið við ÍBV og markmiðið er að halda áfram að gera strákana betri og hafa gaman af því að spila fótbolta. Ég vil nota tækifærið og hvetja alla Eyjamenn til að mæta á leiki hjá okkur í sumar, ég lofa því að það verður alvöru Eyjaskemmtun," sagði Óðinn eftir undirskriftina.
Fyrsti leikur KFS í sumar er gegn ÍH þann 7. maí í Eyjum.
Heimild: ÍBV Sport
