Tveimur síðustu leikjum kvöldsins er lokið í Bestu deild karla þar sem Íslandsmeistarar Víkings R. unnu nauman sigur á Stjörnunni eftir að hafa lent undir í tvígang.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 3 - 2 Stjarnan
Örvar Eggertsson skoraði fyrsta markið eftir einfalda sókn þar sem Andri Rúnar Bjarnason átti stoðsendinguna.
Elías Már Ómarsson svaraði með jöfnunarmarki fyrir Víkinga eftir innkast og var staðan jöfn í leikhlé, en Gylfi Þór Sigurðsson fór meiddur af velli skömmu fyrir hálfleiksflautið. Gylfi meiddist við að skjóta boltanum rétt yfir markið á 43. mínútu.
Stjörnumenn endurheimtu forystuna í síðari hálfleik þegar Andri Rúnar skoraði eftir fyrirgjöf frá Birni Snæ Ingasyni en heimamenn voru fljótir að jafna og aftur var Elías Már á ferðinni. Í þetta sinn skallaði hann fyrirgjöf frá Helga Guðjónssyni í netið.
Víkingar fengu nokkur góð færi eftir jöfnunarmarkið en þegar leikurinn virtist vera að róast aftur niður leit sigurmarkið dagsins ljós. Óskar Borgþórsson skoraði það með skalla eftir fyrirgjöf á 83. mínútu og skiptu gestirnir úr Garðabænum um gír á lokakaflanum.
Þeir fengu góð færi til að jafna og komust hársbreidd frá jöfnunarmarki í uppbótartíma en boltinn rataði ekki í netið, svo lokatölur urðu 3-2.
Íslandsmeistararnir eru með sjö stig eftir þrjár fyrstu umferðirnar á nýju deildartímabili. Stjarnan situr eftir með sex stig eftir að hafa sigrað tvo fyrstu leiki sumarsins.
Víkingur R. 3 - 2 Stjarnan
0-1 Örvar Eggertsson ('5)
1-1 Elías Már Ómarsson ('21)
1-2 Andri Rúnar Bjarnason ('52)
2-2 Elías Már Ómarsson ('54)
3-2 Óskar Borgþórsson ('83)
Á sama tíma vann Valur þægilegan sigur á FH þar sem heimamenn gerðu út um viðureignina í fyrri hálfleik.
Adam Ægir Pálsson, Hörður Ingi Gunnarsson og Hólmar Örn Eyjólfsson skoruðu þrjú mörk á hálftíma og urðu lokatölur 3-0.
Leikurinn byrjaði afar fjörlega þar sem bæði lið fengu góð færi til að skora en Adam Ægir náði forystunni eftir laglegt einstaklingsframtak á níundu mínútu og tvöfaldaði Hörður Ingi forystuna með skalla eftir hornspyrnu.
Liðin héldu áfram að skiptast á höggum en ekki tókst gestunum úr Hafnarfirði að skora. Þess í stað setti Hólmar Örn þriðja mark heimamanna með skalla eftir hornspyrnu.
Valsarar tóku stjórn á leiknum út fyrri hálfleikinn og voru óheppnir að bæta ekki fleiri mörkum við.
Síðari hálfleikurinn var nokkuð jafn og tókst hvorugu liði að skora. Valur er með sex stig eftir sigurinn en FH situr eftir með aðeins eitt stig.
Valur 3 - 0 FH
1-0 Adam Ægir Pálsson ('9)
2-0 Hörður Ingi Gunnarsson ('14)
3-0 Hólmar Örn Eyjólfsson ('37)
Lestu um leikinn: Valur 3 - 0 FH



