Klukkan 17:00 tekur Þór á móti Fram í 3. umferð Bestu deildarinnar. Um fyrsta heimaleik Þórs í efstu deild í tólf ár er að ræða. Það er viðeigandi á þessum fyrsta degi sumars að Þórsarar frumsýna glænýjan völl í dag. Eftir að hafa spilað inni í Boganum á síðasta tímabili eru Þórsarar mættir út!
Eftir fyrstu tvo leikina er Fram með fjögur stig og Þór er með þrjú stig.
Eftir fyrstu tvo leikina er Fram með fjögur stig og Þór er með þrjú stig.
Lestu um leikinn: Þór 0 - 0 Fram
Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, gerir þrjár breytingar frá tapinu gegn KR í síðustu umferð. Ragnar Óli Ragnarsson er ekki með í dag og þeir Ágúst Eðvald Hlynsson og Sigfús Fannar Gunnasson taka sér sæti á bekknum. Inn í liðið koma þeir Isaac Atanga, Sverrir Páll Ingason (2008) og Bjarni Guðjón Brynjólfsson. Peter Ingi Helgason kemur inn á bekkinn. Þrír leikmenn fæddir 2008 byrja hjá Þór. Búast má við því að Ásbjörn Líndal spili í hjarta varnarinnar hjá Þór í fjarveru Ragnars Óla.
Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, gerir eina breytingar á sínu liði frá sigrinum gegn Keflavík í síðustu umferð. Ægir Jarl Jónasson kemur inn í liði fyrir Israel Garcia sem tekur sér sæti á bekknum. Jakob Byström snýr aftur eftir leikbann og er á bekknum.
Byrjunarlið Þór :
1. Aron Birkir Stefánsson (m) (f)
2. Ásbjörn Líndal Arnarsson
5. Yann Emmanuel Affi
7. Atli Sigurjónsson
8. Einar Freyr Halldórsson
9. Sebastian Heimvik Haugland
11. Isaac Atanga
15. Kristófer Kristjánsson
16. Bjarni Guðjón Brynjólfsson
18. Sverrir Páll Ingason
25. Christian Greko Jakobsen
Byrjunarlið Fram:
22. Viktor Freyr Sigurðsson (m)
3. Þorri Stefán Þorbjörnsson
5. Kyle McLagan
8. Haraldur Einar Ásgrímsson
12. Simon Tibbling
17. Atli Þór Jónasson
18. Ægir Jarl Jónasson
19. Kennie Chopart (f)
25. Freyr Sigurðsson
26. Sigurjón Rúnarsson
29. Vuk Oskar Dimitrijevic
Besta karla
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. KR | 3 | 3 | 0 | 0 | 14 - 6 | +8 | 9 |
| 2. Stjarnan | 2 | 2 | 0 | 0 | 6 - 4 | +2 | 6 |
| 3. Breiðablik | 3 | 1 | 2 | 0 | 2 - 1 | +1 | 5 |
| 4. Fram | 2 | 1 | 1 | 0 | 6 - 4 | +2 | 4 |
| 5. Víkingur R. | 2 | 1 | 1 | 0 | 3 - 1 | +2 | 4 |
| 6. Valur | 2 | 1 | 0 | 1 | 3 - 3 | 0 | 3 |
| 7. Þór | 2 | 1 | 0 | 1 | 4 - 6 | -2 | 3 |
| 8. ÍA | 3 | 0 | 2 | 1 | 4 - 5 | -1 | 2 |
| 9. FH | 2 | 0 | 1 | 1 | 3 - 4 | -1 | 1 |
| 10. KA | 3 | 0 | 1 | 2 | 3 - 6 | -3 | 1 |
| 11. Keflavík | 3 | 0 | 1 | 2 | 3 - 6 | -3 | 1 |
| 12. ÍBV | 3 | 0 | 1 | 2 | 4 - 9 | -5 | 1 |


