Þór spilar á glænýjum Þórsvelli - VÍS vellinum - á morgun þegar Fram kemur í heimsókn í 3. umferð Bestu deildarinnar. Leikurinn hefst klukkan 17:00. Völlurinn verður einnig heimavöllur Þórs/KA.
Síðasta haust var lagður gervigrasvöllur á Þórssvæðinu, við hliðina á grasvellinum. Búið er að setja upp 500 manna stúku og það eru flóðljós við völlinn.
Síðasta haust var lagður gervigrasvöllur á Þórssvæðinu, við hliðina á grasvellinum. Búið er að setja upp 500 manna stúku og það eru flóðljós við völlinn.
KSÍ hefur tekið út völlinn og svæðið í kring og gefið grænt ljós á að leikurinn fari þar fram á morgun.
„Við spilum á heimavellinum okkar í næsta leik. Við erum ekkert eðlilega ánægðir með stuðninginn og maður heyrði helvíti vel í þeim hérna í dag. Ég er mjög bjartsýnn fyrir framhaldinu, við erum mjög ánægðir með hópinn okkar. Skrekkurinn hlýtur að leka aðeins af okkur núna, þurfum að vera aðeins stærri og þurfum fleiri góðar frammistöður í næsta leik svo heildarbragurinn verði betri," sagði Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, eftir leikinn gegn KR síðasta föstudag. Þórsarar ætla að halda leikmannakynningu í félagsheimili sínu, Hamri, í kvöld.
Fram er með fjögur stig eftir fyrstu tvo leikina og Þór er með þrjú stig. Ármann Hinrik tók myndirnar af vellinum.




