Alisson orðaður við Juventus - Vilja framlengja lánssamninginn við Rashford
   fim 23. apríl 2026 18:24
Kári Snorrason
Byrjunarlið Víkings og Stjörnunnar: Gylfi með bandið - Emil Atla utan hóps
Gylfi Þór Sigurðsson er fyrirliði Víkinga í fjarveru Ekroth.
Gylfi Þór Sigurðsson er fyrirliði Víkinga í fjarveru Ekroth.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Andri Rúnar skoraði sigurmark Stjörnunnar gegn FH í síðustu umferð.
Andri Rúnar skoraði sigurmark Stjörnunnar gegn FH í síðustu umferð.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Elías Már skoraði seinna mark Víkings í 2-0 sigri gegn KA í síðustu umferð.
Elías Már skoraði seinna mark Víkings í 2-0 sigri gegn KA í síðustu umferð.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Klukkan 19:15 flautar Ívar Orri Kristjánsson dómari til leiks í stórleik umferðarinnar þar sem Víkingur tekur á móti Stjörnunni. Búið er að opinbera byrjunarlið leiksins.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 1 -  1 Stjarnan

Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, gerir þrjár breytingar á liði sínu frá 0-2 útisigri gegn KA í síðustu umferð.

Inn í liðið koma þeir Sveinn Gísli Þorkelsson, Helgi Guðjónsson og Elías Már Ómarsson.

Þeir Nikolaj Hansen og Daníel Hafsteinsson taka sér sæti á bekknum. En fyrirliðinn Oliver Ekroth meiddist í leiknum gegn KA og er hann utan hóps.

Stígur Diljan Þórðarson missti af leiknum fyrir norðan vegna meiðsla og er sömuleiðis utan hóps í dag. Jóhannes Kristinn Bjarnason er ekki valinn í hópinn að þessu sinni sem og Aron Elís Þrándarson.

Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, gerir tvær breytingar á liði sínu frá 3-2 sigri gegn FH síðastliðinn föstudag.

Emil Atlason stífnaði upp í síðasta leik gegn FH og er því utan hóps í dag. Í hans stað kemur Andri Rúnar Bjarnason en hann skoraði sigurmark Stjörnunnar gegn FH síðastliðinn föstudag.

Þá kemur Sindri Þór Ingimarsson inn í byrjunarliðið í stað Daníel Finns Matthíassonar sem tekur sér sæti á bekknum. Spurning hvort að Jökull ætli að stilla upp í þriggja manna vörn eða hvort Sindri spili sem djúpur á miðju.


Byrjunarlið Víkingur R.:
1. Ingvar Jónsson (m)
2. Sveinn Gísli Þorkelsson
6. Gunnar Vatnhamar
7. Erlingur Agnarsson
9. Helgi Guðjónsson
10. Gylfi Þór Sigurðsson (f)
19. Óskar Borgþórsson
20. Tarik Ibrahimagic
22. Karl Friðleifur Gunnarsson
25. Valdimar Þór Ingimundarson
28. Elías Már Ómarsson

Byrjunarlið Stjarnan:
12. Árni Snær Ólafsson (m)
3. Gustav Kjeldsen
5. Guðmundur Kristjánsson (f)
6. Sindri Þór Ingimarsson
7. Örvar Eggertsson
8. Jóhann Árni Gunnarsson
11. Birnir Snær Ingason
18. Guðmundur Baldvin Nökkvason
21. Ibrahim Turay
23. Benedikt V. Warén
99. Andri Rúnar Bjarnason
Slapp
banner
banner
banner