Óskar Borgþórsson reyndist hetja Víkings í dramatískum 3–2 sigri á Stjörnunni þegar hann skallaði fyrirgjöf Ármanns Inga í netið á 85. mínútu. Markið reyndist sigurmark leiksins.
Fótbolti.net ræddi við Óskar að leik loknum.
Fótbolti.net ræddi við Óskar að leik loknum.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 3 - 2 Stjarnan
„Það var ekkert eðlilega fallegt. Ég er búinn að vera æfa þetta. Alltaf eftir æfingar; Skallarnir. Þetta var veikleiki minn. Fagna fyrir framan strákana og stuðningsmennina, þetta var best í heimi.“
Óskar var óvaldaður á fjærsvæðinu í markinu.
„Þeir gleymdu mér bara. Þeir eiga ekkert að gleyma mér, því þá skorar maður.“
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
























