23.05.14 - 17:07
Magnús Már Einarsson
Evra framlengir við Manchester United (Staðfest)

Patrice Evra.

Mynd: Getty Images

Patrice Evra.

Mynd: Getty Images
Patrice Evra hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við Manchester United en félagið staðfesti þetta nú rétt í þessu.
Samningur Evra átti að renna út í sumar og búist var við að franski bakvörðurinn myndi róa á önnur mið.
Samningur Evra átti að renna út í sumar og búist var við að franski bakvörðurinn myndi róa á önnur mið.
Evra var meðal annars orðaður við félög á Ítalíu en nú er ljóst að hann verður áfram á Englandi.
Evra er 33 ára gamall en hann hefur verið hjá Manchester United síðan hann árið 2006 þegar hann kom til félagsins frá Monaco.
Evra er 33 ára gamall en hann hefur verið hjá Manchester United síðan hann árið 2006 þegar hann kom til félagsins frá Monaco.
