23.05.14 - 17:04
Daníel Freyr Jónsson
Frank Lampard farinn frá Chelsea (Staðfest)

Frank Lampard.

Mynd: Getty Images

Lampard skoraði 147 mörk í 429 deildarleikjum með Chelsea.

Mynd: Getty Images

Frank Lampard.

Mynd: Getty Images
Enski miðjumaðurinn Frank Lampard hefur yfirgefið Chelsea á frjálsri sölu eftir að samningur hans rann út.
Koma þessi tíðindi mjög á óvart, en Lampard er einn sigursælasti leikmaður í sögu félagsins. Samingur hans er runninn út og fær hann ekki nýjan samning líkt og þeir Ashley Cole og Samuel Eto\'o.
Lampard kom til Chelsea frá West Ham árið 2001 fyrir 11 milljónir punda og er hann markahæsti leikmaður í sögu félagsins. Skoraði hann alls 147 mörk í 429 deildarleikjum.
Á ferli sínum vann hann allt sem í boði var. Þrisvar hampaði hann enska meistaratitilinum auk þess sem hann var í liði Chelsea sem varð Evrópumeistari fyrir tveimur árum. Þá vann hann enska FA-bikarinn í þrígang.
Óljóst er hvað nú tekur við fyrir Lampard, en lék 26 deildarleiki með Chelsea í vetur og var reiknað með að hann myndi framlengja samning sinn.
Uppfært 18:00:
Samingur Lampard við Chelsea er runninn út og er hann því frjáls ferða sinna. Enn er þó möguleiki á að hann semji við félagið og leiki með því á næstu leiktíð.