23.05.14 - 20:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Marc Albrighton til Leicester (Staðfest)

Marc Albrighton mun spila hjá Leicester á næstu leiktíð

Mynd: Getty Images

Leicester City hefur gengið frá kaupum á Marc Albrighton frá Aston Villa en hann skrifaði undir fjögurra ára samning við félagið.
Hinn 24 ára gamli Albrighton var búinn að vera hjá Villa síðan hann var átta ára gamall.
,,Ég er gríðarlega ánægður með að vera á leiðinni til Leicester, þetta er frábært félag til að vera partur af,\" Sagði Albrighton í viðtali við heimasíðu Leicester.
,,Þetta voru frábær 16 ár hjá mér hjá Villa og ég átti mjög góða tíma þar sem ég mun muna eftir að eilífu. Mig hlakkar hins vegar til að takast á við nýja áskorun hjá Leicester. Ég get ekki beðið eftir að byrja.\"
,,Ég talaði við þjálfarann og hann hefur há markmið. Áður en ég kom, talaði ég við nokkrar manneskjur og enginn hafði neitt slæmt að segja um þjálfarann eða félagið.\"