Fotbolti.net
23.05.14 - 12:15
Magnús Már Einarsson

Matthew Upson til Leicester (Staðfest)

Matthew Upson til Leicester (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Varnarmaðurinn reyndi Matthew Upson hefur skrifað undir eins árs samning hjá nýliðum Leicester í ensku úrvalsdeildinni.

Þessi 35 ára gamli leikmaður var valinn leikmaður tímabilsins hjá Brighton á nýliðnu tímabili.

Upson ákvað að hafna nýju samningstilboði frá Brighton til að ganga í raðir Leicester.
Upson hefur einnig leikið með Arsenal, Birmingham City, West Ham United og Stoke á ferli sínum.

Hann er annar leikmaðurinn sem Leicester fær í vikunni á eftir markverðinum Ben Hamer sem kemur frá Charlton.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.