Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   fim 23. maí 2019 16:30
Elvar Geir Magnússon
Stuðningsmenn Liverpool vilja ekki fá Bale
Gareth Bale.
Gareth Bale.
Mynd: Getty Images
Velski sóknarleikmaðurinn Gareth Bale er ekki í áætlunum Zinedine Zidane þó leikmaðurinn sjálfur vilji vera áfram í Madríd.

Bale var ónotaður varamaður í 2-0 tapi gegn Real Betis í lokaumferð La Liga. Það er tiltektarsumar framundan hjá Real Madrid eftir erfitt tímabil. Liðið hafnaði í þriðja sæti La Liga og vann ekki titil.

Zidane fer ekki leynt með það að Bale eigi ekki framtíð hjá Real Madrid.

Talað hefur verið um mögulega endurkomu í ensku úrvalsdeildina en Tottenham og Manchester United hafa þar helst verið nefnd.

Liverpool Echo ákvað að gera skoðanakönnun á vefsíðu sinni og spurði hvort stuðningsmenn Liverpool vilji fá Bale til félagsins.

24 þúsund tóku þátt en 66% svöruðu nei en 34% já.
Athugasemdir
banner