Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 23. maí 2020 08:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heskey tæki Sancho í Liverpool frekar en Haaland eða Mbappe
Jadon Sancho í viðtali.
Jadon Sancho í viðtali.
Mynd: Getty Images
Emile Heskey, fyrrum sóknarmaður Liverpool, ráðleggur Liverpool að kaupa frekar Jadon Sancho en Kylian Mbappe og Erling Braut Haaland.

Hinn tvítugi Sancho er mjög eftirsóttur og Heskey hefur greinilega mikið álit á honum.

„Ef ég ætti að velja einn af þessum þremur fyrir Liverpool þá myndi ég velja Sancho," sagði Heskey við GentingBet.

„Mbappe er magnaður leikmaður sem á bara eftir að verða betri og betri. Ef þú ert að velja leikmann fyrir Liverpool þá væri það meira kantmaður en sóknarmaður. Ég ætla að vera fylginn minni þjóð og segja Sancho, hann er enskur landsliðsmaður og skemmtilegur leikmaður líka."

Sancho hefur slegið í gegn með Borussia Dortmund frá því hann kom þangað frá Manchester City árið 2017. Hann hefur hvað mest verið orðaður við erkifjendur Liverpool í Manchester United.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner