Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 23. maí 2020 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Leroy Lita til Nuneaton Borough (Staðfest)
Lita er fyrrum úrvalsdeildarframherji.
Lita er fyrrum úrvalsdeildarframherji.
Mynd: Getty Images
Keppni í utandeildunum á Englandi var fyrir nokkrum vikum hætt vegna kórónuveirufaraldursins. Félög í deildunum eru farin að huga að næsta tímabili.

Nuneaton Borough hefur styrkt sig allverulega því sóknarmaðurinn Leroy Lita hefur samþykkt að leika með félaginu á næstu leiktíð.

Lita, sem er 35 ára gamall, er fyrrum úrvalsdeildarframherji. Hann er líklega hvað þekktastur fyrir tíma sinn hjá Reading, en hann hefur komið víða við á Englandi sem og annars staðar.

Lita býr nálægt heimavelli Nuneaton, en þjálfari liðsins Jimmy Ginnelly, segir að Lita sé ekki að spila fyrir peninginn og því hafi þetta getað gengið upp.

Þess má geta að Nuneaton er í sjöundu efstu deild á Englandi.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner