Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 23. maí 2020 21:27
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Tveir í viðbót úr úrvalsdeildinni með veiruna (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildin hefur staðfest að alls voru 996 aðilar úr úvalsdeildinni, leikmenn og annað starfsfólk, prófað í vikunni og rannsakað hvort einhver væri með COVID-19.

Úrvalsdeildin staðfesti ennfremur að tvö sýni hafi reynst jákvæð. Ekki er vitað að svo stöddu hverjir einstaklingarnir eru.

Þó er sagt frá því að aðilarnir komi frá sitthvoru félaginu. Skimað var á þriðjudag, fimmtudag og föstudag.

Í tilkynningu úrvalsdeildarinnnar kemur einnig fram að þessir aðilar muni nú fara í viku eingangrun.


Athugasemdir
banner
banner