Chelsea og Arsenal vilja Kroupi - Man Utd bjartsýnt á að landa Ederson og Tonali - Inter hefur áhuga á Kepa
   fös 22. maí 2026 13:43
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Guardiola orðlaus eftir ákvörðun City
Mynd: EPA
Manchester City hefur ákveðið að nefna Norðurstúkuna á Etihad leikvanginum eftir fráfarandi stjóra liðsins, Pep Guardiola. Guardiola er stíga til hliðar eftir tíu ár hjá félaginu og sautján stóra titla. Talið er að Enzo Maresca taki við af Spánverjanum.

Guardiola hefur náð stórkostlegum árangri sem stjóri liðsins og skilur við félagið sem goðsögn.

„Ég er orðlaus. Á engin orð. Hvað get ég sagt? Khaldoon (formaður City) hringdi í mig og sagði að félagið hefði tekið þessa ákvörðun. Ég gat ekkert sagt. Ég er hrifinn af þeirri tilhugsun að orkan mín verði þarna að eilífu. Á erfiðum augnablikum, þegar einhver horfir þangað og þeir sjá Pep þar, þá mun ég senda orku mína til liðsins og félagsins. Þetta er einn mesti heiður sem mér hefur hlotnast. Eg vil þakka félagiu innilegafyrir. Pabbi minn verður hér á sunnudag, hann er 94 ára og hann mun koma og horfa, og það er mikill heiður að hafa nafnið hasn hér. Ég er orðlaus," sagði Guardiola á fréttamannafundi í dag.

Í dag var einnig sagt frá því að stytta af Guardiola verði fyrir framan innganginn að The Pep Guardiola stúkunni.

Guardiola verður áfram í hlutverki hjá City Group á næsta ári, en þó ekki sem þjálfari.
Slapp
banner