Barcelona 4 - 0 Lyon
1-0 Ewa Pajor ('55 )
2-0 Ewa Pajor ('70 )
3-0 Salma Paralluelo ('90 )
4-0 Salma Paralluelo ('93 )
1-0 Ewa Pajor ('55 )
2-0 Ewa Pajor ('70 )
3-0 Salma Paralluelo ('90 )
4-0 Salma Paralluelo ('93 )
Barcelona hefur verið besta fótboltalið heims í kvennaboltanum síðustu ár og það kom gríðarlega á óvart þegar liðið tapaði úrslitaleik Meistaradeildarinnar á móti Arsenal í fyrra.
Börsungar komust aftur í úrslitaleikinn í ár, líkt og þær höfðu gert síðustu fimm ár í röð, og mættu frönsku risunum í Lyon sem slógu ríkjandi meistara Arsenal úr leik í undanúrslitum.
Bæði lið sköpuðu sér hættulegar stöður í skemmtilegum fyrri hálfleik en tókst ekki að skora. Bæði lið skiptu um gír í síðari hálfleik og færðist meiri hraði í leikinn. Það var mikið um góð færi en Börsungar fengu þó hættulegustu færin og náðu forystunni.
Ewa Pajor, fyrrum liðsfélagi Sveindísar Jane Jónsdóttur í Wolfsburg, skoraði á 55. mínútu og tvöfaldaði forystuna korteri síðar og hélst staðan 2-0 þar til á lokamínútunum þegar Lyon lagði allt í sóknina.
Salma Paralluelo refsaði Frökkunum með tveimur mörkum undir lokin, svo lokatölur urðu 4-0.
Barcelona er því Evrópumeistari í fjórða sinn á sex árum.
Til gamans má geta að þetta var fjórða úrslitaeinvígi Barcelona og Lyon á síðustu átta árum.




