23.06.16 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Chelsea lánar Musonda aftur til Real Betis (Staðfest)

Musonda átti mjög gott tímabil með Real Betis

Mynd: Getty Images

Hinn efnilegi Charly Musonda verður áfram í láni hjá Real Betis á Spáni á næsta tímabili, en hann er samningsbundinn Chelsea.
Musonda kom til Chelsea frá Anderlecht árið 2012 ásamt bræðrum sínum tveimur Tik og Lamisha.
Belginn hefur ekki enn leikið með aðalliði Chelsea og það þarf aðeins að bíða lengur.
Musonda lék 14 leiki í La Ligu á Spáni á síðasta tímabili og skoraði eitt mark.
Hann er ánægður með það að vera áfram hjá Betis.
„Að spila í efstu deild Spánar er mjög gott og Betis er hið fullkomna félag,\" sagði Musonda.