Fotbolti.net
23.06.16 - 10:13
Ingólfur Sigurðsson

Vardy áfram hjá Leicester (Staðfest)

Áfram í Leicester.

Áfram í Leicester.

Canon

Mynd: Getty Images

Enski landsliðsmaðurinn Jamie Vardy hefur hafnað tilboði Arsenal og samþykkt nýjan fjögurra ára samning við Leicester City. Vardy mun skrifa undir þegar England hefur lokið þátttöku á EM.
Arsenal nýtti sér klásúlu í samningi Vardy í sumar en Arsené Wenger, þjálfari Arsenal, sagði fyrr í vikunni að líklegast yrði ekkert úr félagaskiptunum. Það hefur nú komið á daginn.

Vardy skoraði 24 mörk fyrir Leicester á síðasta tímabili sem varð Englandsmeistari.

Vardy undirbýr sig nú fyrir leik gegn Íslandi í 16 liða úrslitum Evrópumótsins sem fer fram í Frakklandi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.