Fotbolti.net
23.06.16 - 20:28
Arnar Geir Halldórsson

Wanyama til Tottenham (Staðfest)

Nýjasti leikmaður Tottenham

Nýjasti leikmaður Tottenham

Canon

Mynd: Getty Images

Tottenham Hotspurs hefur gengið frá kaupum á miðjumanninum Victor Wanyama sem kemur til Lundúnarliðsins frá Southampton.
Þessi 24 ára gamli Kenýamaður gerir fimm ára samning við Tottenham og er kaupverðið 13,5 milljónir punda.

Wanyama þekkir vel til Mauricio Pochettino, stjóra Tottenham, eftir að hafa spilað undir stjórn hans hjá Southampton en þessi varnarsinnaði miðjumaður hefur leikið hjá Southampton frá árinu 2013.

Wanyama lék með Beerschot í Belgíu og Celtic í Skotlandi áður en hann mætti í enska boltann.

We are delighted to announce that we have completed the transfer of @VictorWanyama from Southampton. #WelcomeWanyama pic.twitter.com/kLbVoNv4Vw

— Tottenham Hotspur (@SpursOfficial) June 23, 2016

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.