FH fékk KR í heimsókn á Kaplakrikavöll í kvöld í Pepsí Max-deild karla og vann KR 1-2 útisigur. Ólafur Kristjánsson þjálfari FH hefur áhyggjur af spilamennsku liðsins og sagði sigur KR í kvöld verðskuldaðan.
Lestu um leikinn: FH 1 - 2 KR
„Þetta var verðskuldaður sigur KR, við vorum mjög slakir í fyrri hálfleik, þessi barátta og bragur sem maður vill hafa á liðinu var ekki til staðar. Við vorum heppnir að vera 1-0 undir í hálfleik, þeir voru með yfirburði. Eftir þennan leik getur maður sagt að við þorðum ekki að spila mikið inn fyrir, vorum meira að senda til hliðar og við vorum of passívir."
Ólafur tjáði sig ekkert um verkfallið sem talað er um að leikmenn FH hafi mögulega farið í. Ólafur segir að nú sé kominn tími til að sýna að þeir geti tekið á mótlætinu og snúið genginu við.
„Ég held að formaðurinn hafi svarað því bara ágætlega þegar hann var spurður. Staða okkar er ekki góð og ég er í brúnni, ég hef alltaf haft það þannig þar sem ég er að maður er ekki að hugsa um það, ég er ekki með æviráðningu. Hér í FH standa menn saman og við leysum málin saman í sameiningu. Þegar á móti blæs eru það þeir sem eru sterkir á svellinu rísa upp, þola að ekki gangi vel og stíga upp þegar á móti blæs. Það er verkefni næstu daga að vinna í því."
Athugasemdir