Enska B-deildarfélagið Nottingham Forest hefur sagt skilið við Roy Keane.
Keane gerði garðinn frægan hjá bæði Forest og Manchester United á ferli sínum sem knattspyrnumaður en hann fór út í þjálfun eftir ferilinn.
Hann og Martin O'Neill mynduðu öflugt teymi hjá írska landsliðinu þar sem Keane var aðstoðarþjálfari.
Þeir hættu báðir í nóvember og í janúar tóku þeir við Nottingham Forest.
Keane er farinn frá Forest en O'Neill verður áfram þar. Forest þakkaði Keane fyrir vel unnin störf.
Hann verður þó áfram spekingur á Sky Sports líkt og á síðasta tímabili en það er óvíst hvert næsta verkefni hans verður í þjálfun.
Athugasemdir