Það myndaðist ágætis umræða á Twitter í kringum leiki dagsins, þá sérstaklega eftir leikinn í Kaplakrika í kvöld. Hér að neðan má sjá brot af henni.
Við minnum á kassamerkið #fotboltinet fyrir boltaumræðuna á Twitter.
Stjarnan er svo fáránlega mikið bogey-team fyrir okkur Fylkismenn. Síðasti deildarsigur var 2013. Tap í öllum síðan þá. Rugluð tölfræði. https://t.co/mx545rKFly#fotboltinet #PepsiMaxDeildin @fylkirmfl
— Eyþór (@eythorsnorra) June 23, 2019
Ófagmannlegt eða ekki. Óli Jó vildi meina að ég væri ófagmannlegur að spyrja sömu spurningarinnar aftur til að fá skýrari svör. Létt yfir Óla Jó þessa dagana. https://t.co/OTjIiuhXLh #fotboltinet
— Arnar Daði Arnarsson (@arnardadi) June 23, 2019
Finnur Tómas reads the game so well, feel like his interception stats would be right at the top. What a story it would be to pick up a title in his first season. #fotboltinet
— Lucas Arnold (@FotboltiLucas) June 23, 2019
Óli Jó er Jón Bjarnason fótboltans. Kann ekkert að koma fram í fjölmiðlum! Hvert viðtal er eins og sena í Klovn #fotboltinet
— Hafsteinn Árnason (@h_arnason) June 23, 2019
Sex U21 í fremsta hluta Víkingsliðsins fyrir varnarsinnaða skiptingu undir lokin. #fotboltinet
— Haraldur Haraldsson (@HarHaralds) June 23, 2019
Verð að hrósa Grindavík, 6 uppaldir leikmenn komið við sögu í dag í efstudeild karla í knattspyrnu. Búa rétt rúmlega 3000 manns þarna. Til fyrirmyndar.
— Þórður Einarsson (@doddi_111) June 23, 2019
Eins spiluðu Íbv á einhverjum 7 gegn Breiðablik. Þetta skilar sér á endanum.
Meistaralið hafa breidd. Pablo var að mæta inná og þarna er haugur af hæfileikum tilbúinn ef þarf. #vesturbæjarveldið #fotboltinet pic.twitter.com/YRIyAvuJmh
— Magnús Þór Jónsson (@maggimark) June 23, 2019
Talað um að leikmenn FH hafi farið í verkfall um daginn.Spurning hvort stuðningsmenn þurfi ekki að fara í verkfall þangað til nýr þjálfari verður ráðinn.Þvílíka skrípó liðið.3 sigrar af 9 !!! Við erum FH ef þeir sem ràða hafa gleymt því. #fotboltinet
— Rosmundur Magnusson (@RosiMaggg) June 23, 2019
PepsiMax er tveggja hesta hlaup (staðfest). Blix og KR slást héðan af. #fotboltinet
— Magnús Þór Jónsson (@maggimark) June 23, 2019
United bragur á þessu FH liði, Liverpool bragur á KR liðinu... #fotboltinet
— Kristján I. Gunnars (@Kristjan_Ingi) June 23, 2019
Finnur Tómas tapar ekki. Hann kom inn í lið KR gegn HK þann 20. maí. Síðan þá hefur KR unnið alla leiki og lítur út eins og meistaralið. Fæddur 2001 og með mikla hæfileika. Rosalegt upgrade frá Albert Watson! #fotboltinet
— Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson (@gummi_aa) June 23, 2019
Hver ætli sé ástæðan fyrir því að Pepsi Max mörkin kalli https://t.co/HfAoxn1dyE alltaf„einhvers staðar'' þegar þeir vitna í okkur? Hver einasti þáttur. #fotboltinet
— Hafliði Breiðfjörð (@haflidib) June 23, 2019
Rúni Kri doing Rúni Kri things! 🥶
— Runólfur Trausti Þórhallsson (@Runolfur21) June 15, 2019
Eh ves ven? pic.twitter.com/1b1XfSEoKF
— Jón Kári Eldon (@jonkarieldon) June 23, 2019
FH komnir í botnbaráttuna með Völsurum #gjaldþrot
— Hugi Halldórsson (@hugihall) June 23, 2019
Beitir með enn einn stórleikinn. Gaman að geta þess að Vals Hláturkastið telur hann vera ca 8.-9. besta markmann deildarinnar. Sem er einmitt sætið sem Vali situr í núna.
— Daníel Rúnarsson (@danielrunars) June 23, 2019
✅✅✅
— Lucas Arnold (@FotboltiLucas) June 23, 2019
Insane. 6 wins from 6 games and @KRreykjavik are flying.
— Lucas Arnold (@FotboltiLucas) June 23, 2019
Next game? Blikar.