Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 23. júní 2021 13:58
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Kolbeinn skoraði gegn Bröndby - Endurtók leikinn frá því fyrir 10 árum
Kolbeinn Sigþórsson
Kolbeinn Sigþórsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kolbeinn Sigþórsson skoraði eina mark Gautaborgar í æfingaleik gegn Bröndby í dag.

Markið skoraði Kolbeinn á 9. mínútu leiksins. Gautaborg leiddi í leikhléi en Bröndby náði að skora tvö mörk í seinni hálfleik og vinna sigur.

Mark Kolbeins má sjá hér að neðan. Hann skoraði eftir undirbúning Tobias Sana. Kolbeinn tók laglega við boltann og bjó sér til pláss með góðri snertingu.

Kolbeinn átti svo skot sem fór af varnarmanni og þaðan í netið.

Vakin er athygli á því að það eru tíu ár síðan Kolbeinn skoraði sitt fyrsta mark fyrir Ajax. Það var einmitt gegn Bröndby í æfingaleik.

Kolbeinn lék með Ajax á árunum 2011-2015.


Athugasemdir
banner
banner