Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 23. júní 2021 21:39
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mynd: Dramatíkin í dauðariðlinum í kvöld
Portúgal komst áfram.
Portúgal komst áfram.
Mynd: EPA
Það var mikil skemmtun í dauðariðlinum á EM í kvöld. Lokaumferðin í riðlinum fór fram.

Það var mikil dramatík í leikjunum tveimur. Portúgal, Ungverjaland og Þýskaland voru öll um tíma í síðasta sæti riðilsins og þar með á leið út.

Svo fór að lokum að Þýskaland gerði jafntefli við Ungverjaland og tryggði sér annað sætið í riðlinum.

Ungverjaland kveður en Frakkland og Portúgal fara einnig áfram. Það er ekki annað hægt að segja en að Ungverjaland hafi sýnt stórkostlega baráttu í þessum riðli.

Hér að neðan má sjá góða mynd sem sýnir hversu mikil dramatík var í riðlinum í kvöld.

Sjá einnig:
Svona eru 16-liða úrslitin á EM


Athugasemdir
banner
banner
banner