Fotbolti.net
23.06.21 - 22:32
Hafliði Breiðfjörð

Óli Jó: Þurfum að slípa leikinn og vera jákvæðari

Auglýsing
Óli Jó: Þurfum að slípa leikinn og vera jákvæðari
Canon

Mynd: FH

Mjólkurbikarinn
„Ég er fyrst og fremst ánægður með að vinna leikinn. Við vorum í smá basli í fyrri hálfleik og þeir fengu ágætis færi á okkur en við kláruðum leikinn vel og erum ánægðir með það," sagði Ólafur Jóhannesson nýráðinn þjálfari FH eftir 4 - 1 sigur á Njarðvík í Mjólkurbikar karla í kvöld.
„Það voru góðir sprettir í leiknum en svo voru aðrir hlutir sem voru ekki nógu góðir og við þurfum að fara aðeins yfir það. Heilt yfir fínn leikur."

Ólafur tók við þjálfun FH í fyrradag eftir að hafa verið í starfi hjá Stöð 2 Sport í sumar þar sem hann fylgdist með liðinu. Hverju þarf að breyta hjá FH?

„Það kemur í ljós, við þurfum aðeins að slípa leikinn okkar og vera jákvæðari, þá kemur þetta," sagði hann en ætlar hann að styrkja leikmannahópinn?

„Nei ég held ekki," sagði hann. „Ég er ekki að vinna í því ennþá og ekki að biðja um það."

Nánar er rætt við hann í spilaranum að ofan. Hann ræðir meiðsli Péturs Viðarssonar og Hjartar Loga Valgarðssonar, Emil Hallfreðsson og er spurður afhverju hann semur bara út tímabilið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.