Fotbolti.net
23.06.22 - 11:00
Hafliði Breiðfjörð

Enn hægt að fá miða á alla leiki Íslands á EM hjá KSÍ

Fyrsti leikur Íslands er gegn Belgíu í Manchester 10. júlí. Enn er hægt að fá miða á leikinn.

Fyrsti leikur Íslands er gegn Belgíu í Manchester 10. júlí. Enn er hægt að fá miða á leikinn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair

KSÍ tilkynnti á vef sínum í gær að hægt sé að fá miða á alla leiki Íslands á EM í Englandi sem hefst í næsta mánuði.

Nokkuð langt er síðan uppselt var á alla leiki mótsins en  KSÍ hefur áskotnast miðar sem hafa losnað af ýmsum ástæðum í lokaundirbúningi og skipulagi mótsins og leikjanna.

Á vef KSÍ er bent á að hægt sé að  hafa samband sem fyrst við KSÍ í gegnum [email protected] og tryggja sér miða.

Leikir Íslands í riðlakeppninni

 - Belgía - Ísland sunnudaginn 10. júlí á Manchester City Academy Stadium

 - Ítalía - Ísland fimmtudaginn 14. júlí á Manchester City Academy Stadium

 - Ísland - Frakkland 18. júlí á New York Stadium í Rotherham

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.