Fotbolti.net
23.06.26 - 18:58
Brynjar Ingi Erluson

Byrjunarlið Englands og Gana: Tuchel gerir tvær varnarbreytingar

Marc Guehi kemur inn fyrir John Stones

Marc Guehi kemur inn fyrir John Stones

Canon

Mynd: EPA

Thomas Tuchel gerir tvær breytingar á liði sínu fyrir leik Englands gegn Gana í annarri umferð í L-riðli heimsmeistaramótsins, en leikurinn hefst klukkan 20:00 og er spilaður á Gillette-leikvanginum í Boston í Bandaríkjunum.
Þjóðverjinn gerir breytingar á vörninni. Marc Guehi og Djed Spence koma inn fyrir John Stones og Nico O'Reilly.

Bukayo Saka og Marcus Rashford eru áfram á bekknum.

Thomas Partey er kominn í byrjunarlið Gana eftir að hafa misst af fyrsta leiknum gegn Panama, þar sem honum var meinað að koma til Kanada. Það er ein af fjórum breytingum hjá Gana en Kwasi Sibo, Inaki Williams og markvörðurinn Benjamin Asare koma einnig inn í liðið.

Báðar þjóðir unnu sinn fyrsta leik og önnur þeirra gæti tryggt sér sæti í 32-liða úrslitum í kvöld.

England: Pickford; James, Konsa, Guehi, Spence; Anderson, Rice; Madueke, Bellingham, Gordon; Harry Kane.

Gana: Asare; Senaya, Adjetey, Opoku, Mensah; Yirenkyi, Partey; Sibo, Inaki Williams, Semenyo; Jordan Ayew.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.