Deschamps yfirgefur herbúðir Frakka vegna andláts móður sinnar

Didier Deschamps

Mynd: EPA

Didier Deschamps

Mynd: EPA
Didier Deschamps, þjálfari franska landsliðsins, mun ekki stýra liðinu gegn Noregi í lokaumferð riðlakeppni heimsmeistaramótsins.
Frakkar tryggðu sér sæti í 32-liða úrslitum með þægilegum 3-0 sigri á Írak í nótt.
Didier Deschamps er nú farinn heim til Frakklands til að vera viðstaddur jarðarför móður sinnar sem lést á dögunum.
Hann verður því ekki á hliðarlínunni í leiknum gegn Noregi þann 26. júní en aðstoðarmaður hans, Guy Stephan, mun stýra liðinu í fjarveru hans. Þetta staðfesti franska fótboltasambandið í kvöld.
Deschamps verður líklega kominn aftur til starfa áður en 32-liða úrslitin hefjast.

France manager Didier Deschamps will miss the team’s final group stage match vs. Norway to attend his mother’s funeral in France, the FFF have confirmed. pic.twitter.com/BiLFRdNsxk
— ESPN FC (@ESPNFC) June 23, 2026