Fotbolti.net
23.06.26 - 15:23
Kári Snorrason

Daníel Freyr keyptur til Lyngby (Staðfest)

Daníel er fæddur árið 2005.

Daníel er fæddur árið 2005.

Canon

Mynd: Lyngby

Daníel Freyr Kristjánsson er genginn í raðir Lyngby frá Midtjylland. Hann skrifar undir fjögurra ára samning við félagið, til sumarsins 2030.

Daníel er tvítugur vinstri bakvörður sem er uppalinn í Stjörnunni. Hann var keyptur til Midtjylland þegar hann var sextán ára, 2022 en Daníel hefur leikið á láni hjá Fredericia undanfarin tvö tímabil.
Hann er kynntur með pompi og prakt hjá Lyngby og var skemmtilegt myndband þar sem Daníel skrollaði í gegnum myndir af íslenskum leikmönnum sem höfðu spilað fyrir félagið.

Í myndbandinu voru myndir af Ísaki Snæ Þorvaldssyni, Sævari Atla Magnússyni, Kolbeini Birgi Finnssyni, Alfreð Finnbogasyni, Andra Lucas Guðjohnsen og Gylfa Þór Sigurðssyni. Þá stýrði Freyr Alexandersson liðinu jafnframt í tæp þrjú ár.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.