HM: Ronaldo stimplaði sig inn í stórsigri

Cristiano Ronaldo skoraði tvö og er mættur til leiks!

Mynd: EPA

Úr leiknum

Portúgal 5 - 0 Úsbekistan
1-0 Cristiano Ronaldo ('6 )
2-0 Nuno Mendes ('17 )
3-0 Cristiano Ronaldo ('39 )
4-0 Abduvakhid Nematov ('60, sjálfsmark )
5-0 Rafael Leao ('87 )

Portúgal er komið á topp K-riðils heimsmeistaramótsins eftir öruggan 5-0 sigur á Úsbekistan í Houston í Texas í kvöld. Cristiano Ronaldo stal senunni og skoraði tvennu.
Ronaldo hafði verið gagnrýndur fyrir leikinn. Hann átti ekki sinn besta leik gegn Kongó í fyrstu umferðinni og eins og svo oft áður var hann sagður kominn yfir hæðina góðu.
Úsbekistan er vissulega ekki sterkasti andstæðingurinn en liðið er þó aðeins fjórum sætum neðar en Kongó á heimslistanum.
Ronaldo var staðráðinn í að opna markareikninginn og það tók hann ekki nema tæpar sex mínútur. Joao Cancelo sendi boltann frá hægri inn á teiginn á Ronaldo, sem stýrði honum í netið á nærstönginni.
Þungu fargi var af honum létt og um leið varð Ronaldo fyrsti leikmaðurinn í sögunni til að skora á sex heimsmeistaramótum.
Portúgalir bættu við öðru marki ellefu mínútum síðar. Þeir fengu aukaspyrnu rétt utan teigs, Ronaldo og Nuno Mendes stóðu yfir boltanum og flestir bjuggust við að Ronaldo tæki spyrnuna. Útfærslan kom hins vegar á óvart. Mendes tók spyrnuna og stýrði boltanum niðri í vinstra hornið.
Úsbekar héldu að þeir hefðu minnkað muninn eftir hálftíma leik þegar Azizjon Ganiev skoraði stórglæsilegt mark. Boltinn datt fyrir hann fyrir utan teig og hann þrumaði honum rakleiðis upp í samskeytin vinstra megin. Fögnuður Úsbeka var þó skammvinnur því brotið hafði verið á Joao Cancelo í aðdragandanum og markið var dæmt af eftir skoðun í VAR.
Þetta var aðvörun fyrir Portúgali sem svöruðu með þriðja markinu tíu mínútum síðar.
Bruno Fernandes sendi Ronaldo í gegn hægra megin við teiginn. Markvörður Úsbeka, Abduvakhid Nematov, kom út á móti en Ronaldo var yfirvegaður, lagði boltann framhjá honum og í netið.
Þar með var Ronaldo orðinn elsti leikmaðurinn í sögu HM til að skora tvennu. Í leiðinni varð hann markahæsti Portúgalinn í sögu heimsmeistaramótsins og bætti met goðsagnarinnar Eusebio, sem skoraði níu HM-mörk. Ronaldo er nú kominn með tíu.
Undir lok uppbótartíma fyrri hálfleiks var Ronaldo hársbreidd frá því að fullkomna þrennuna. Sending kom frá hægri inn á Ronaldo, sem þurfti að hugsa hratt og lyfti boltanum yfir Nematov, sem kom út á móti. Úsbekar náðu hins vegar að bjarga á línu.
Ronaldo var fullur sjálfstrausts og mikill eldmóður í honum allan fyrri hálfleikinn.
Bæði lið fengu færi í síðari hálfleik en skemmtilegasta tilraunin kom á 60. mínútu. Ronaldo leit út fyrir að ætla að taka aukaspyrnu en gekk síðan frá boltanum og í átt að teignum. Fernandes lyfti boltanum yfir vörnina og á Ronaldo en Nematov varði frábærlega frá honum.
Portúgalir skoruðu fjórða markið skömmu síðar. Hornspyrna kom inn á nærstöngina á Joao Felix, sem kom boltanum í Abdukodir Khusanov. Þaðan fór hann í Nematov og í netið.
Ronaldo fékk tvö góð færi skömmu eftir seinni vatnspásuna. Fyrra skotið fór framhjá og skömmu síðar fékk hann algert dauðafæri þegar hann vann boltann inni í teig og kom sér á vinstri fótinn, en aftur sá Nematov við honum.
Þremur mínútum fyrir lok venjulegs leiktíma rak varamaðurinn Rafael Leao síðasta naglann í kistu Úsbeka. Nelson Semedo komst upp að endamörkum og setti boltann fyrir markið. Sendingin var aðeins of aftarlega fyrir Ronaldo en Leao kom á ferðinni fyrir aftan hann og klíndi boltanum upp í samskeytin vinstra megin.
Stórkostlegt mark og það síðasta í leiknum. Lokatölur 5-0 fyrir Portúgal, sem er komið með fjögur stig og á topp K-riðils. Úsbekistan er án stiga á botninum.