Fotbolti.net
23.06.26 - 17:20
Kári Snorrason

Ronaldo sá fyrsti til að skora á sex mismunandi heimsmeistaramótum

Ronaldo sá fyrsti til að skora á sex mismunandi heimsmeistaramótum
Canon

Mynd: EPA

Það tók Cristiano Ronaldo aðeins sex mínútur að brjóta ísinn í leik Portúgals og Úsbekistan.

Með marki sínu varð Ronaldo fyrsti leikmaðurinn til að skora á sex mismunandi heimsmeistaramótum. Hann hefur nú skorað á öllum heimsmeistaramótum frá 2006. Mörkin alls níu.

Fyrir leikinn sem nú er í gangi hafði Ronaldo ekki skorað í fjórum leikjum í röð með Portúgal og í 10 leikjum í röð á stórmótum.
Lionel Messi sló í gær markametið á HM en hann hefur skorað á fimm mismunandi heimsmeistaramótum. Hann hefur skorað á öllum mótum frá 2006 að mótinu í Suður-Afríku 2010 utanskyldu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.