Markús Andri heillaði Hollendinga á reynslu hjá AZ

Mynd: Aðsend

Mynd: Aðsend
Markús Andri Daníelsson Martin var í síðustu viku á reynslu hjá hollenska félaginu AZ Alkmaar og gekk honum vel þar.
Varnarmaðurinn æfði og spilaði með U17 ára liði AZ og lagði m.a. upp mark í 6-3 sigri á unglingaliði Go Ahead Eagles.
Hollendingarnir voru verulega hrifnir af honum og er talið líklegt að félagið hafi áhuga á því að fá hann í sínar raðir.

TENGT EFNI
Efnilegir Hvergerðingar semja við Stjörnuna (Staðfest)
Markús Andri er Hvergerðingur sem söðlaði um og gekk í raðir Stjörnunnar í vetur og hefur fimm sinnum verið í leikmannahópi Garðabæjarliðsins á tímabilinu.
Hann þykir mjög mikið efni, er fæddur árið 2010 og hefur þegar spilað 20 leiki fyrir yngri landslið Íslands.