Fotbolti.net
23.06.26 - 15:30
Elvar Geir Magnússon

Norsku leikmennirnir réru með fólkinu í stúkunni

Stuðningsmenn Noregs taka róðurinn úti á götu.

Stuðningsmenn Noregs taka róðurinn úti á götu.

Canon

Mynd: EPA

Norsku stuðningsmennirnir á HM hafa vakið athygli fyrir 'róðurinn' sem er þeirra útgáfa af Víkingaklappinu. Í norsku útgáfunni þykjast stuðningsmennirnir vera að róa víkingaskipi.

Róðurinn hefur farið eins og eldur um sinu og norska stuðningsfólkið rær við hvert tækifæri; í stúkunni, á börum, almenningssamgöngum og á götum úti.

Þá var róðurinn tekinn á norska þinginu til að sýna landsliðinu stuðning.
Norðmenn mættir með sína útgáfu af Víkingaklappinu
TENGT EFNI

Norðmenn mættir með sína útgáfu af Víkingaklappinu

Sitt sýnist hverjum um róðurinn og í könnun á Instagram síðu Fótbolta.net eru heldur betur skiptar skoðanir. Lesendur hallast frekar í áttina að vera ekki hrifnir enda eru margir á þeirri skoðun að um kjánalega stælingu á Víkingaklappinu sé að ræða.

Þá hefur róðurinn einnig fengið gagnrýni fyrir að vera tilvísun til vígamanna sem fóru um ruplandi og rænandi á ofbeldisfullan hátt á víkingaöld.

Eftir sigurinn á Senegal síðustu nótt tóku leikmenn liðsins róðurinn í takt við stuðningsmenn sína en það var fyrirliðinn Martin Ödegaard sem stýrði. Norðmenn hafa tryggt sér í 32-liða úrslitin og mikil HM gleði ríkir hjá þjóðinni:


Róðurinn tekinn á norska þinginu:

Róðurinn tekinn á Times Square í New York:

Róið í lestinni:

Róðurinn tekinn í stúkunni:
Norsku leikmennirnir réru með fólkinu í stúkunni
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.