Fotbolti.net
23.07.13 - 15:42
Magnús Már Einarsson

Breiðablik kallar Elvar Pál til baka úr láni (Staðfest)

Breiðablik kallar Elvar Pál til baka úr láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik hefur kallað Elvar Pál Sigurðsson til baka úr láni frá Tindastóli. Elvar Páll hefur verið mjög öflugur með stólunum í sumar en hann hefur skorað fimm mörk í 1. deildinni.

Elvar fer til Bandaríkjanna í nám í byrjun ágúst en hann mun vera hjá Blikum þangað til.
,,Ég sá hann síðast spila á laugardaginn og hann er búinn að vera mjög góður í sumar,\" sagði Ólafur Kristjánsson þjálfari Breiðabliks við Fótbolta.net í dag.

,,Meðan við erum i þessum prógrami þá vil ég hafa sem breiðastan hóp,\" bætti Ólafur við en Breiðablik er í eldlínunni í Pepsi-deildinni, Evrópudeildinni og Borgunarbikarnum þessa dagana.

Elvar getur ekki verið í leikmannahópi Blika gegn Sturm Graz í Evrópudeildinni á fimmtudag en hann verður löglegur gegn ÍBV næstkomandi sunnudag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.