23.07.13 - 12:24
Magnús Már Einarsson
Josh Watt til ÍA (Staðfest)

Úr leik ÍA og ÍBV um síðustu helgi.

Mynd: Ingunn Hallgrímsdóttir

Úr leik ÍA og ÍBV um síðustu helgi.

Mynd: Ingunn Hallgrímsdóttir
ÍA hefur samið við skoska framherjann Josh Watt en hann hefur æft með liðinu að undanförnu.
Þetta staðfesti Þórður Guðjónsson framkvæmdastjóri knattspyrnufélagsins ÍA við Fótbolta.net í dag.
Watt verður tvítugur í næsta mánuði en hann var síðasta á mála hjá Motherwell í heimalandinu.
Þetta staðfesti Þórður Guðjónsson framkvæmdastjóri knattspyrnufélagsins ÍA við Fótbolta.net í dag.
Watt verður tvítugur í næsta mánuði en hann var síðasta á mála hjá Motherwell í heimalandinu.
Watt er þriðji leikmaðurinn sem gengur í raðir ÍA í mánuðinum en áður höfðu Thomas Sörensen og Hafþór Ægir Vilhjálmsson komið til félagsins.
Að sögn Þórðar eru Skagamenn í leit að frekari liðsstyrk áður en félagaskiptaglugginn lokar í næstu viku.
Að sögn Þórðar eru Skagamenn í leit að frekari liðsstyrk áður en félagaskiptaglugginn lokar í næstu viku.
