Fotbolti.net
23.07.19 - 11:35
Magnús Már Einarsson

Myndband: Liverpool menn hittu risa úr NBA deildinni

Jurgen Klopp stjóri Liverpool.

Jurgen Klopp stjóri Liverpool.

Canon

Mynd: Getty Images

Liverpool er þessa dagana í æfingaferð í Bandaríkjunum og í gær hittu leikmenn liðsins Tacko Fall og Grant Williams leikmenn Boston Celtics í NBA.

Tacko er 231 cm á hæð en hann sat fyrir á myndum ásamt Jurgen Klopp, stjóra Liverpool og leikmönnum liðsins.

<i>„Hann mun borða mig lifandi í morgunmat,"</I> sagði Virgil van Dijk léttur í bragði.

Klopp hafði gaman að því að hitta NBA stjörnuna og sagði að Tacko minnti sig á Peter Crouch.

Hér að neðan má sjá svipmyndir af því þegar Liverpool menn hittu Tacko og Williams.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.