Fotbolti.net
23.07.20 - 21:39
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Heimir Guðjóns: Vilja ekki allir vera þar?

Auglýsing
Heimir Guðjónsson.

Heimir Guðjónsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<i>„Það er alltaf fínt að vinna leikinn og fínt að fá fyrsta heimasigurinn,"</i> sagði Heimir Guðjónsson, þjálfari Vals, eftir 3-0 sigur á Fylki í Pepsi Max-deildinni.
Valur vann sinn fyrsta sigur á heimavelli í Pepsi Max-deildinni í sumar og er liðið komið á toppinn.

„Mér fannst við ágætir í dag. Það er margt sem við getum gert betur en við fáum þrjú stigin."

Valur spilaði mjög vel en Heimir hefði viljað sjá sitt lið klára leikinn fyrr. „Við áttum möguleika á að klára leikinn fyrr. Við settum óþarfa pressu á okkur í seinni hálfleik. Fylkisliðið er þrusugott og hefur sýnt það í leikjunum sínum í sumar."

„Vilja ekki allir vera þar?" sagði Heimir um að liðið sé komið toppinn, en þar verða Valsmenn í bili að minsta kosti.

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan. Við biðjumst velvirðingar á vindhljóðum í viðtalinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.