Huddersfield hefur ráðið Carlos Coberan sem nýjan þjálfara sinn. Huddersfield leikur í Championship-deildinni.
Danny Cowley var óvænt rekinn frá Huddersfield í síðustu viku þrátt fyrir að hafa náð að tryggja sæti liðsins í Championship deildinni.
Hinn 37 ára gamli Corberan hefur verið í þjálfarateyminu hjá aðalliði Leeds auk þess að þjálfa U23 ára lið félagsins. Corberan er frá Spáni en hann hefur áður starfað hjá Valencia sem og í Sádi-Arabíu og Kýpur.
Hann kemur úr skóla Marcelo Bielsa, stjóra Leeds, en það þykir afar góður skóli þegar kemur að fótboltafræðunum.
Sjá einnig:
'El Loco' og fleiri koma Leeds á réttan stað eftir 16 stormasöm ár
✅ #htafc is delighted to confirm Carlos Corberán as the Club’s new Head Coach!
— Huddersfield Town (@htafc) July 23, 2020
Athugasemdir