Fotbolti.net
23.07.21 - 18:56
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Danmörk: Ágúst byrjaði en tekinn af velli í hálfleik

Ágúst spilaði með FH fyrri hluta sumars.

Ágúst spilaði með FH fyrri hluta sumars.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Ágúst Hlynsson var í byrjunarliði Horsens er liðið hóf leik í dönsku 1. deildinni í kvöld.
Horsens féll úr dönsku úrvalsdeildinni í fyrra þar sem Ágúst var ekki í stóru hlutverki. Hann var lánaður til FH þar sem hann fékk að spila fyrri hluta tímabilsins í Pepsi Max-deildinni.

Hann kom inn í byrjunarlið Horsens í dag sem er vonandi það sem koma skal á þessu tímabili hjá honum. Hann spilaði þó bara fyrri hálfleikinn og var tekinn af velli í hálfleik.

Því miður voru úrslitin ekki Horsens í hag, því þeir töpuðu á heimavelli gegn HB/Köge. Staðan var markalaus í hálfleik en í seinni hálfleik gengu gestirnir á vaðið og skoruðu tvö mörk. Lokaniðurstaðan 0-2 sigur Jon Flanagan og félaga í HB/Köge.

Þetta var sem fyrr segir fyrsti leikur Horsens í dönsku 1. deildinni á tímabilinu. Næst á liðið útileik við Fremad Amager.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.