Fotbolti.net
23.07.26 - 12:00
Elvar Geir Magnússon

Júlíus Mar var valinn maður leiksins - Líður vel í Kristiansund

Júlíus gekk í raðir Kristiansund frá KR síðasta vetur.

Júlíus gekk í raðir Kristiansund frá KR síðasta vetur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Júlíus Mar Júlíusson, fyrrum varnarmaður KR og Fjölnis, var valinn besti maður vallarins þegar Kristiansund gerði markalaust jafntefli við Sarpsborg í norsku úrvalsdeildinni um síðustu helgi. Hrannar Snær Magnússon kom inn af varamannabekknum í seinni hálfleik.

Kristiansund er næstneðst eftir þrettán umferðir en er í þéttum pakka og með sigri gegn botnliði Start á laugardaginn getur liðið tekið stökk upp töfluna.

Júlíus Mar er í viðtali við samfélagsmiðla Kristiansund.
„Þetta var gott svar frá liðinu eftir slæman leik gegn Rosenborg. Við vissum allir að við þyrftum að gera betur og liðið svaraði vel. Við hefðum viljað vinna leikinn en það var gott að halda hreinu og það gefur liðinu sjálfstraust. Við þurfum að byggja ofan á þetta," segir Júlíus.

Júlíus hefur verið hjá Kristiansund í sex mánuði og var spurður að því hvernig sér liði í norska boltanum.

„Mér líður mjög vel. Þetta hefur verið virkilega skemmtileg reynsla. Mér var tekið vel alveg frá byrjun. Allir hafa hjálpað mér að finna mig og ég er þakklátur fyrir að vera hér. Þetta er frábært félag."


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.