Fotbolti.net
23.07.26 - 11:40
Elvar Geir Magnússon

Leeds í viðræðum um Trafford

James Trafford til Leeds?

James Trafford til Leeds?

Canon

Mynd: EPA

Leeds United er í viðræðum við Manchester City um enska markvörðinn James Trafford.

Trafford var í landsliðshópi Englands á HM en hann gekk í raðir Manchester City frá Burnley fyrir ári síðan. Hann lék aðeins fjóra deildarleiki á síðasta tímabili en alls 17 leiki í öllum keppnum.
Leeds er í leit að nýjum aðalmarkverði eftir að Karl Darlow gekk í raðir Manchester United. Félagið hefur sýnt Zion Suzuki markverði Parma áhuga.

Trafford hefur verið orðaður við Newcastle en í gær var greint frá því að áhuginn hefði kólnað og ólíklegt væri að hann myndi ganga í raðir félagsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.