23.07.26 - 16:20
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Skjót viðbrögð í Krikanum og búið að skrúfa niður birtuna

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Fótbolti.net vakti athygli á því í vikunni að birtustigið á auglýsingaskiltunum á Kaplakrikavelli væri of hátt, og átti það sérstaklega við þegar bakgrunnur auglýsinganna var hvítur.
Þetta varð greinilegra eftir því sem dimmdi á mánudagskvöldið þegar FH tók á móti Breiðabliki í Bestu deild karla.
Leikmenn höfðu orð á því að birtan frá skjáunum væri truflandi.
Menn voru fljótir að bregðast við og þegar FH tók á móti Stjörnunni á þriðjudagskvöld var búið að stilla niður birtuna og hún stillt fyrir íslenskar aðstæður.

TENGT EFNI