Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   fös 23. ágúst 2019 13:00
Magnús Már Einarsson
Firmino elskar að spila gegn Arsenal
Liverpool fær Arsenal í heimsókn í ensku úrvalsdeildinni klukkan 16:30 á morgun.

Roberto Firmino, framherji Liverpool, kann einstaklega vel við sig í leikjum gegn Arsenal.

Firmino skoraði þrennu þegar Liverpool burstaði Arsenal 5-1 á Anfield milli jóla og nýárs í fyrra.

Samtals hefur Firmino skorað átta mörk í átta leikjum gegn Arsenal á ferlinum og það einungis í ellefu skotum.

Að auki hefur hann lagt upp þrjú mörk í leikjum Liverpool og Arsenal í gegnum tíðina. Ljóst er að varnarmenn Arsenal verða með góðar gætur á hann á morgun.
Athugasemdir
banner