Fotbolti.net
23.08.20 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Aston Villa krækti í hinn efnilega Chrisene (Staðfest)

Ampadu var ekki orðinn 17 ára þegar Chelsea rændi honum frá Exeter.

Ampadu var ekki orðinn 17 ára þegar Chelsea rændi honum frá Exeter.

Canon

Mynd: Getty Images

Aston Villa er búið að tryggja sér þjónustu miðjumannsins unga Ben Chrisene.
Chrisene er aðeins 16 ára gamall og gengur í raðir Aston Villa eftir að hafa gert góða hluti með unglingaliði Exeter City og yngri landsliðum Englands.

Chrisene var eftirsóttur af Chelsea og Liverpool í fyrra og fékk Frank Lampard hann til Chelsea á reynslu. Hann ákvað þó að vera eftir hjá Exeter þar til tilboð barst frá Aston Villa.

„Við óskum Ben alls hins besta hjá sínu nýja félagi en það er algjör synd að við höldum áfram að missa okkar bestu menn áður en við fáum tækifæri til að vinna með þeim," sagði Matt Taylor, þjálfari Exeter.

Exeter hefur misst marga öfluga leikmenn frá sér í gegnum tíðina. Ethan Ampadu er hjá Chelsea, Ollie Watkins er hjá Brentford og Matt Grimes hjá Swansea.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.