23.08.20 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Dýrasti markvörður í sögu Króatíu til Atletico (Staðfest)
Adan til Sporting á frjálsri sölu

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Atletico Madrid er búið að festa kaup á króatíska markverðinum Ivo Grbic sem kemur frá NK Lokomotiva fyrir 7 milljónir evra.
Þetta gerir Grbic að dýrasta markverði í sögu Króatíu, enda kostar hann talsvert meira heldur en Danijel Subasic og Stipe Pletikosa kostuðu á sínum tíma.
Grbic er 24 ára gamall og hefur alla tíð leikið í króatísku deildinni. Hann á 23 leiki að baki fyrir yngri landslið Króatíu en á enn eftir að spila fyrsta A-landsleikinn.
Hann er fenginn til Atletico sem varamarkvörður fyrir hinn slóvenska Jan Oblak sem er talinn í hópi allra bestu markvörða heims. Chelsea hefur verið orðað við Oblak í sumar en verðmiðinn á honum er talinn vera í kringum 100 milljónir evra.
Grbic tekur sæti Antonio Adan sem varamarkvörður Atletico. Hinn 33 ára gamli Adan fór frítt til Sporting CP.