Fotbolti.net
23.08.20 - 11:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Igor Tudor ráðinn sem aðstoðarþjálfari Juventus (Staðfest)

Igor Tudor ráðinn sem aðstoðarþjálfari Juventus (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Igor Tudor mun vera hægri hönd Andrea Pirlo sem tók óvænt við stjórn á Juventus eftir að Maurizio Sarri var rekinn í sumar.
Sarri var rekinn eftir tap Juve gegn Lyon í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar og kom ráðningin á Pirlo gríðarlega á óvart þar sem hann hefur enga reynslu af því að vera aðalþjálfari.

Tudor mun reynast mikilvægur fyrir Pirlo en hann býr yfir góðri reynslu úr boltanum, bæði sem leikmaður og þjálfari.

Tudor var leikmaður Juventus í níu ár í kringum aldamótin og hefur stýrt Hajduk Split, PAOK, Karabukspor, Galatasaray og Udinese á þjálfaraferlinum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.